Sony Xperia X - Tekið á móti símtölum

background image

Tekið á móti símtölum

Ef þú tekur við símtali þegar tækið er í svefnstillingu eða skjárinn er læstur opnar

símaforritið í fullu skjásniði. Ef hringt er í þig á meðan síminn er virkur birtist það sem

fljótandi tilkynning, þ.e. í smækkuðum glugga sem flýtur fyrir ofan skjáinn sem er opinn.

Þegar svona tilkynning kemur getur þú valið að svara símtalinu og opna símaforritaskjáinn

eða þú getur hafnað símtalinu og verið á núverandi skjá.

Símtali svarað þegar skjárinn er óvirkur

Þegar símtal berst dregur þú til hægri.

Símtali svarað þegar skjárinn er virkur

Þegar símtal berst pikkarðu á

SVARA í tilkynningunni sem birtist efst á skjánum.

Í staðinn fyrir að svara símtalinu geturðu opnað aðalforritaskjá símans með því að pikka á

tilkynningagluggann. Með þessari aðferð bjóðast fleiri símtalsvalkostir. Til dæmis er hægt að

hafna símtalinu með skilaboðum.

Símtali hafnað þegar skjárinn er virkur

Þegar símtal berst dregur þú til vinstri.

Símtali hafnað þegar skjárinn er virkur

Þegar símtal berst pikkarðu á

Hunsa í tilkynningunni sem birtist efst á skjánum .

Í staðinn fyrir að hafna símtalinu getur þú farið í aðalsímaforritaskjáinn með því að pikka á efri

hluta viðvörunartilkynningargluggans. Við það að nota þessa aðferð færðu fleiri valkosti til að

vinna með símtalið. Það er t.d. hægt að hafna símtalinu með skilaboðum.

Slökkt á hringitóni fyrir móttekið símtal

Þegar þú færð símtal, ýtirðu á hljóðstyrkstakkann.

Símsvarinn notaður

Þú getur notað símsvaraforrit tækisins til að svara í símann þegar þú ert upptekin(n) eða

missir af símtali. Þú getur kveikt á sjálfvirkri símsvörun og tilgreint hversu margar sekúndur

skuli líða þangað til símtali er svarað sjálfkrafa. Þú getur einnig sent símtöl handvirkt í

símsvarann þegar þú ert of upptekin(n) til að svara. Seinna geturðu nálgast skilaboð sem

skilin eru eftir á símsvaranum.

Áður en símsvarinn er notaður þarftu að taka upp kveðju.

68

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Kveðja tekin upp fyrir símsvara

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Xperia™ símsvari > Kveðjur.

3

Pikkaðu á

Taka upp nýja kveðju og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.

Kveikt á sjálfvirkri símsvörun

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Xperia™ símsvari.

3

Pikkaðu á sleðann við hliðina á

Símsvari.

Ef þú stillir ekki seinkun fyrir sjálfvirka símsvörun verður sjálfgefið gildi notað.

Seinkun á sjálfvirkri símsvörun stillt

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Xperia™ símsvari.

3

Pikkaðu á

Svara eftir.

4

Breyttu tímanum með því að fletta upp og niður.

5

Pikkaðu á

Lokið.

Símtal áframsent í símsvara

Þegar símtal berst pikkarðu á

Svarmöguleikar og velur svo Hafna með símsvara.

Þegar símtal berst geturðu líka beðið þar til fyrirfram ákveðinn tími er liðinn svo símsvarinn taki

sjálfkrafa við símtalinu.

Hlustað á skilaboð á símsvara

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Xperia™ símsvari > Skilaboð.

3

Veldu talskilaboðin sem þú vilt hlusta á.

Einnig er hægt að hlusta á skilaboð á símsvaranum beint úr símatalaskránni með því að pikka

á .

Símtali hafnað með textaskilaboðum

Þú getur hafnað símtali með textaskilaboðum sem eru send sjálfkrafa til hringjandans og

vistuð í samtalssögunni við tengiliðinn.
Þú getur valið úr fjölda fyrirfram ákveðinna skilaboða í tækinu eða búið til eigin skilaboð.

Þú getur einnig búið til sérsniðin skilaboð með því að breyta þeim sem fyrir eru.

Símtali hafnað með textaskilaboðum þegar slökkt er á skjánum

1

Þegar símtal berst skaltu pikka á

SVARVALKOSTIR.

2

Veldu forstillt skilaboð eða pikkaðu á

Skrifa ný skilaboð.

Símtali hafnað með textaskilaboðum þegar kveikt er á skjánum

1

Þegar símtal berst pikkarðu á efri hluta tilkynningargluggans þar sem símanúmer

eða nafn tengiliðar birtist.

2

Pikkaðu á

SVARVALKOSTIR.

3

Veldu forstillt skilaboð eða pikkaðu á

Skrifa ný skilaboð.

Öðru símtali hafnað með skilaboðum

1

Þegar þú heyrir endurtekið píp meðan á símtali stendur skaltu pikka á

SVARVALKOSTIR.

2

Veldu forstillt skilaboð eða pikkaðu á

Skrifa ný skilaboð.

69

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Textaskilaboðum sem notuð eru til að hafna símtali breytt

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Símtal > Hafna símtali með skilaboðum.

3

Pikkaðu á skilaboðin sem þú vilt breyta og breyttu því sem þarf.

4

Pikkaðu á

Í lagi.